Hvers vegna þurfa jolin að vera uppfull af spennu og streitu? Í Desemer býður Arnór upp á öndun og slökun í formi jóladagatals. Á hverjum degi færð þú sent myndband með leiddri öndun, slökun, hugleiðslu, teyjum eða öðrum fróðleik. Í gegnum árin hefur Arnór sankað að sér ýmissi þekkingu og tækni sem stuðlar að sterkari, stöðugri og almennt rólegra taugakerfi. Það þýðir ekki að segja einhverjum að “slaka á”, við þurfum að kunna það. Með þessu dagatali getur þú fengið að dýfa tánni í öll þau tól sem Arnór kennir í sínum tímum, sem þú getur svo nýtt þér það sem eftir er.
Myndbönd verða send beint í pósthólfið þitt daglega og þú getur gert æfingarnar hvar og hvenær sem þér hentar, hvort sem það er um leið og þú vaknar, í vinnunni eða á kvöldin. Á sunnudags aðventunum verður lengri leiðsla, sem fer með þig í meiri djúpslökun. Þá er fínt að koma sér svolítið vel fyrir með teppi, púða og góð heyrnartól.
Megi desember færa þér innri ró og velsæld.
- Verð:
- Innifalið: 24 leiddir tímar
- Skráning: Hefst 1. Des