ANDA
BreathWork

Miðvikudaga í tjaldinu
Kl 20:00- 21:15

SUMARTILBOÐ 23.900kr
ALMENNT VERÐ: 28.900kr

Hér er boðið upp á öndunarferðalag ásamt tónheilun & djúpslökun. Markmiðið er að þú gegnur út með endurnært og núllstillt taugakerfi. 

 Öndunarferðlagið ásamt vandaðri handleiðslu mun hjálpa þér að komast úr framheilanum, tengjast  líkamanum, losa streitu úr kerfinu og leiða þig í djúpt inn í þinn innsta kjarna. Tíbeskar tónskálarnar, gong og fleiri hlóðfæri aðstoða þig við að fara enn dýpra og upplifa víbring í hverri einustu frumu. Nærandi tónar ferðast eins og öldur í gegnum líkamann og hjálpa þér að ná djúpri tengingu við sjálfið, losa djúpliggjandi spennu á meðan líkaminn endurraðar orkunni og skapar samhljóm milli huga, líkama og sálar. Í þessu ástandi hefst úrvinnsla og endurheimt og getur þú jafnvel upplifað meiri slökun og endurnæringu en í venjulegu svefn ástandi.

Öndun


hefur hefur bein áhrif á taugakerfið þitt og hefur verið notuð í þúsundir ára til að bæta andlega og líkamlega heilsu sem að nútíma vísindi styðja í dag. Hvort sem við þurfum ró, einbeitingu, orku eða breytt hugarástand, þá getum nýtt okkur öndun til þess. Pranayama er einn partur af jóga og þýðir „stjórn á lífsorku“ og felst í meðvitaðri stjórn á öndun. Tæknin er notuð til að róa hugann, bæta einbeitingu og auka orku.

Tónheilun


eru bylgjur sem berast um líkama okkar, sem er stórum hluta vatn. Þessar bylgjur geta dregið úr vöðvaspennu, aukið blóðflæði og örvað súrefnisupptöku í frumum.

Þegar heilinn nemur reglubundinn takt eða sérstakar tíðnir, bregst hann við með því að hægja á heilabylgjum sínum. Þannig færast þær úr streitutengdum beta-bylgjum yfir í alfa- og þeta-bylgjur sem tengjast slökun, djúpri hugleiðslu og sköpunargáfu.

Á sama tíma virkjar þessi hljóðheilun sefkerfi líkamans (parasympatíska taugakerfið) sem lækkar hjartsláttartíðni, dregur úr blóðþrýstingi og stuðlar að innri ró og líkamlegri endurnýjun.

Hljóð getur einnig snert dýpri streng í tilfinningalífinu, auðveldað úrvinnslu á ómeðvituðum tilfinningum og skapað jafnvægi milli hugar og líkama.

Djúpslökun


er ekki aðeins ánægjuleg hvíld, hún er lífsnauðsynleg aðferð til að jafna líkamskerfin, styrkja ónæmiskerfið og gefa huganum frið. Með réttri öndun og handleiðslu sendum við skýr skilaboð til taugakerfisins um að við séum örugg sem virkjar sefkerfið (parasympatíska kerfið). Þegar það gerist hægist á hjartslætti, blóðþrýstingur lækkar. Líkaminn fer í úrvinnslu og endurheimt, losar spennu, losar streituhormón og bætir súrefnisflæði til vöðva og heila.

Hvað gerist í slökunarástandi?

  • Djúpur og nærandi svefn
  • Upptaka næringarefna og góð melting
  • Blóðflæði um allar frumur líkamans
  • Samkennd, kærleikur, unaður og tenging
  • Sköpunarkraftur og hugmyndaflug
  • Spennulosun úr vöðvum og taugakerfi
  • Tilfinningalosun og úrvinnsla áfalla
  • Endurheimt (sérstaklega eftir veikindi)
  • Hreinsun úrgangsefna úr lifur, nýrum og sogæðakerfi
  • Eðlileg hormónastarfsemi

   …Og svo mætti lengi telja. 

Hvað á að taka með?

  • Teppi, púða og augngrímu. 
  • Betra að vera vel klædd/ur í tjaldinu.
  • Vatnsbrúsa
  • Opið hugarfar og ásetning

Hvert mæti ég?

Við hittumst heima í Heiðabrún sem er skógi vaxið land með fagurt útsýni yfir Reykjavík til Úlfarsfells. Við munum verja stundinni í stóra tjaldinu okkar. Landið okkar liggur við Krókatjörn (lítið mál að skella sér útí ef það kallar) sem er ekki svo langt frá Hafravatni. Það er ekki nema um 15 mín keyrsla frá Reykjavík. Á google maps stendur Krókatjöm í staðinn fyrir Krókatjörn. Við skráningu verða sendar nánari upplýingar varðandi staðsetninguna!

277295790_10159651470784654_2691600638526303193_n

Arnór Sveinsson er leiðbeinandi

Arnór Sveinsson heiti ég, og ég brenn fyrir því að leiða fólk í átt að sjálfsvinnu. Margir sem koma til mín eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum, og því er gott að vera með mörg tól til að bjóða upp á. Þar sem við erum öll blanda af huga, líkama og sál, þá finnst mér mikilvægt að sjálfsvinna haldi utanum alla þessa þætti. Í tímum hjá mér leiði ég fólk inn í slökunarástand með ýmsum aðferðum, en mikilvægast finnst mér að kenna fólki að nota þessar aðferðir sjálft, svo að það öðlist vald yfir eigin taugakerfi og líkama. 

Viltu koma með hóp?

Ertu með vinahóp, vinnustað eða saumklúbb? Við tökum hjartnelga vel á móti öllum hópum. Sendu fyrirspurn á anda@anda.is og við finnum tíma fyrir hópinn þinn.  

ANDA
BreathWork

Miðvikudaga í tjaldinu
Kl 20:00- 21:15

SUMARTILBOÐ 23.900kr
ALMENNT VERÐ: 28.900kr

Umsagnir

Ég get ekki mælt nógu mikið með einkasession hjá Arnóri. Hann hefur sérstakann hæfileika og færni í að halda rými á meðan á djúpu heilunarferli stendur. Ásetningur, leiddar öndunaræfingar, hljóðheilun tíbetskra söngskála og vefjalosun og útkoman er algjör endurnæring sálar og líkama.
Þóra Hlín Friðriksdóttir
Ég fór í magnaðan einkatíma hjá Arnóri. Djúpar teygjur, bandvefslosun og kviðnudd ásamt öndun & tónheilun. Algjörlega magnað og ekki hægt að setja í orð hvernig mér líður eftir tímann, þú þarft bara að upplifa og leyfa honum að "work his magic"
Aðalheiður Jensen
Arnór miðlar einstökum skilningi og yfirburða þekkingu sinni á samspili líkama og sálar afar skýrt, skiljanlega og (ekki síst!) skemmtilega. Eftir að hafa þegið þá fræðslu hugsar maður öðruvísi um samband hugar og handar, anda og efnis. Að fylgja Arnóri í leiddum öndunaræfingum er alltaf lærdómsríkt og oftast reyndar ríflega það – næstum töfrum líkast.
Ragnar Helgi Ólafsson
**Einkatími í mjaðmalosun, kviðnuddi og  tónheilun– ótrúleg reynsla**
 Ég fékk einstakt tækifæri til að taka þátt í einkatíma sem einbeitti sér að mjaðmalosun, spennulosun í hálsi, kviðnuddi og tónheilun, og þessi reynsla var hreint út sagt ótrúleg. Frá fyrsta augnabliki var nærvera Arnórs algjörlega einstök – róandi, fagmannleg og ótrúlega næm fyrir þörfum mínum.  Rýmið var öruggt og traust sem gerði mér kleift að kafa djúpt inn í líkama minn og vinna úr djúpri spennu.
Æfingarnar og nuddið voru vissulega krefjandi. Þær kröfðust þess að ég sleppti takinu á vanabundinni spennu eða mótstöðu og leyfði líkamanum að taka á móti. Það var ekki alltaf auðvelt, en áhrifin sem komu í kjölfarið voru ólýsanleg. Ég fann fyrir djúpri losun í mjöðmum og kjarna, og mér leið eins og líkami minn hefði opnast og andað að sér ferskum krafti. Ég gat líka fundið hvernig kviðnuddið hafði áhrif á líffærin mín og tengdi mig enn frekar við innri starfsemi líkama míns. Þrátt fyrir að þetta væri mjög krefjandi á köflum fann ég fyrir ótrúlegum létti, mikilli tilfinningalosun og frelsi í líkamanum eftir á.
Þessi tími var sannkallað ferðalag inn á við. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif – bæði líkamlega og andlega. Takk Arnór fyrir einstaka reynslu þangað til næst!
Unnur Magna
Svo að það sé sagt. Þá er hver einasta stund sem ég hef upplifað með Arnóri, tækifæri mitt til þess að færast nær sjálfum mér & uppruna mínum. Hann frá fyrstu tímum sem ég sótti gaf mér þessa stórfengilegu einglægu nærveru & breyttist strax í áhveðna fyrirmynd í mínu ferðalagi í leit að því að vera besta útgáfan af sjálfum mér. Vegna þessa hef ég sótt fjölmarga tíma hjá Arnóri & eru uppáhalds tímarnar sem hann heldur reglulega 3 klst kakó hugleiðsla & tónheilun. Ég geri plönin mín í kringum þá tíma, þar sem ég vill alls ekki missa af þeim. Einnig í amstri dagsins hentar mér að hann sé með opna tíma sem ég get hoppað á & upplifað þegar mér hentar að mæta, eins & miðvikudags hugleiðslu tímana sem er góð leið fyrir mig til að stilla mig af í miðri viku. Ég klárlega mæli með að upplifa alla vega einu sinni að fara í nálægð við þennan kærleiksríka strák & taka einkatíma hjá honum þar sem hann leiðir þig í óskiptri athygli í gegnum öndun, yoga, hugleiðslu & tónheilun. Mitt ferðalag í auðmýkt & kærleik varð vonum framar & lífið fallegra eftir að ég fékk að njóta leiðsagnar Arnórs í lífi mínu. Namaste
Arnar Gauti Sverrisson
Fór loksins í einkatíma hjá Arnóri eftir að vera búinn að vera lengi á leiðinni. Þetta var frábær upplifun. Teygjurnar of öndun með aðstoð Arnórs alveg magnað og svo alveg ótrúleg djúpslökun í kjölfarið. Með Ást og hlýju.
Valur Ásgeirsson
Tilfinningin í líkamanum breytist frá því að vera eins og hann sé gerður úr spítum í að vera mjúkur og lifandi. Í lok tímans ná allir vöðvar líkamann fullkominni slökun sem ég var ekki meðvituð um að væri hægt.
Petra Mazetti
I have been one of Arnór’s regular clients for at least a year and a half. His sessions cater to those seeking a deeper connection to their body and soul. Being in Arnór's presence, along with his extensive knowledge, in a private space is truly powerful and extraordinary. He teaches a lot about the connection between body and mind, and it is genuinely healing. It is impressive to see how each session is tailored to individual needs, exploring all possible paths to personal healing, making each experience unique. As Heraclitus once said, "You can never step into the same river twice," which perfectly illustrates how the body and mind work. My personal experiences with Arnór have always been unique; he has guided me through powerful healing and has supported me throughout my pregnancies and postpartum journey. The breathing aspect of the sessions is something I highly recommend to anyone. It leads to the eternal peace that is essential in daily life and helps us remember who we truly are. During pregnancy, this alignment and internal peace are crucial. Although it was not my first pregnancy, it has definitely been my easiest and most profound experience, for which I am incredibly grateful. The wisdom that follows these sessions is amazing—it sometimes brings feelings of sorrow as we learn to let go, happiness, and deeper pleasure in simply being alive. I am truly grateful. Thank you!
Ilona Maria Luize
Ég fór í einkatíma til Arnórs þar sem við áttum gott spjall saman, hann leiddi mig svo í gegnum öndunarferðalag og spilaði svo á tíbeskar söngskálar á nokkrum stöðum við líkamann. Ég naut þess að fara til hans og mér fannst tíminn hafa öflug áhrif á mig og opna mig fyrir því að hleypa tilfinningum upp á yfirborðið. Mér fannst nærvera Arnórs góð og traust og það var þægilegt að spjalla við hann og deila með honum því sem mig langaði til að vinna í. Öndunarferðalagið hafði mögnuð áhrif á mig og opnaði mig fyrir að finna fyrir tilfinningum mínum og víbringurinn úr söngskálunum hafði líka mikil áhrif á mig og mér fannst hann losa vel um stíflur í orkusviðinu. Ég mæli heilshugar með einkatíma hjá Arnóri.
Helga Arnardóttir
Ég get ekki mælt með neinu meira en öðru af því sem Arnór kennir, allir tímar, öll námskeið, allar hugleiðslur og endurnæringahelgar sem ég hef farið á með/hjá honum eru alltaf umfram öllum vonum. Arnór hefur kennt mér alveg svakalega margt á stuttum tíma, hann er virkilega fróður um hvernig líkaminn virkar og er sérstaklega góður í því að útskýra hluti þannig allir geta tengt við og skilið það sem á sér stað í hverjum tíma. Ég for fyrst á grunnnamskeið í yoga hjá honum og ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa byrjað hjá honum því hann passar virkilega vel uppá það að við beitum líkamanum rétt og öndum rétt sem er megin grundvöllurinn í því að komast lengra í jógastöður og tengjast sjálfum okkur betur. Arnór hefur í þokkabót magnaða nærveru og yndislegan styrk sem ég held að allir átti sig á eftir að hafa mætt í tíma hjá honum.
Melkorka Bjartmars
Ég kynntist Arnóri sumarið 2020 þegar ég fór á retreat hjá honum. Var þá á mörkum þess að vera kominn í kulnunarástand undan ofbeldissambandi við sjálfan mig. Var því mjög opinn fyrir að prufa eitthvað nýtt. Á þessu retreati opnaðist fyrir mér nýr heimur og ég áttaði mig á því að lífið þyrfti ekki að vera svona erfitt. Ég fann innri ró og frið sem ég hafði sjaldan upplifað innan hóps, enginn að dæma þig og allir á sínum forsendum þarna. Síðan þá hef ég markvisst unnið að því að ná að heimfæra þessa tilfinningu inn í mitt líf. Það er ekki alltaf auðvelt alltaf því alltaf erum við að mæta sjálfum okkur. Í þessari vinnu minni hef ég haft Arnór með mér sem leiðbeinanda, farið á námskeið ,einkatíma og fleiri retreat. Árangur hefur verið mikill en það er oft krefjandi að mæta sjálfum sér því ekkert hamlar okkur nema okkar eigið hugarfar og gjörðir a endanum. Arnór er alveg geggjaður gaur, hlýr hress og skemmtilegur en líka alvarlegur þegar við á. Gott að tala við hann til þess að létta á sér eða fá ráð,fagmaður fram í fingurgóma. Ég mæli eindregið með því að allir sem hafa hug á að auka hamingju og vellíðan að nýta sér Arnór og það sem hann hefur upp á að bjóða!
Bjarni Sveinsson
Sumarið 2019 breyttist líf mitt! Ég opnaði dyr sem hafa fyllt hjartað mitt af eintómri hamingju. Arnór var einn þeirra sem kom inn í líf mitt og hefur fært mér svo mikla visku,skilning,einlægni og vináttu.Hann er algjör galdramaður og leiðir hvern og einn tíma af svo mikilli ást, virðingu og krafti. Maður kemst á flug, þar sem allt er mögulegt og leiðin er einfaldlega greið. Hann fær þig til að hugsa, endurskoða og meta allar aðstæður í öðru ljósi sem styrkir innsæið þitt á allt öðru stigi, þinn innri fugl verður Loksins frjáls. Ég mæli eindregið með þessari einstöku sál sem ég hef fengið þau forréttindi að kynnast. Ég vona að allir taki skrefið í þetta einstaka ferðalag sem hann býður manni upp á í mörgum myndum (Whim hof öndun, buteyko öndun, haf öndun, cacao ceramonium , netnámskeiðum og einkatímum. Takk fyrir allt elsku vinur!
Fanney Einarsdóttir
Ég ef farið á námskeið hjá Arnóri og einkatíma. Mér datt ekki í hug þegar ég byrjaði hvað ég myndi læra mikið og svo hvað það myndi hafa mikil og jákvæð áhrif á líf mitt. Mæli 100% með Arnóri. Hver einasti andardráttur eins og Arnór segir.
Arnar Már Snæbjörnsson

Með því að læra nokkur einföld tól, aðferðir sem vísindi styðja við, getum við styrkt “slökunar taugina” eins og við styrkjum vöðva. Því oftar sem við styrkjum getu okkar til að fara í slökunar ástand, þeim mun auðveldara verður að leita í það oftar, ÁN ÁREYNSLU. 

Það getur virst framandi að hugsa sér að það sé hægt að takast á við stress án þess að gnísta tönnum, hafa kaldar hendur, endurteknar hugsanir, meltingar vesen, lið og vöðvaverki, svefntruflanir, og listinn er endalaus. Það er algjörlega hægt að vera upptekin og slakur, virkur og stöðugur, með puttann á púlsinum og í flæði á sama tíma.

Stress er oft talað um sem rót alls ills. Það er satt á þann hátt, að ef við kunnum ekki að vinna með það, breytist það í KRÓNÍSKT stress. Það er þá sem vöðvar rýrna, húð skreppur saman eða bólgnar út, meltingin er stopp, sykurlöngun er stöðug eða matarlyst hverfur, hárið þynnist, liðir eru verkjaðir, vöðvaspenna eykst, heilaþoka eða kvíði kikkar inn, hjartsláttur er óreglulegur, hormónakerfið fer í rugl, og ég ætla að hætta hér því þetta verður bara dapurlegt.

Á HINN BÓGINN er skammtíma stress FRÁBÆRT fyrir allar frumur líkamans. Það gefur okkur orku, kraft, úthald, bætta getu til að takast á við hvað sem er, betri súrefnisupptöku, sterkari hug, og bætir líkamlega og andlega heilsu. 

Því vil ég hér með vísa því á bug að við eigum bara að lifa stresslausu lífi þar sem allt er bara á léttu nótunum og allir dansa um eins og formlaus gufuský. En hver er munurinn og hvernig greini ég þar á milli? Hvernig veit ég hvenær ég er komin úr “góðu stressi” yfir í “slæmt stress”?

Shopping Cart