Slökum aðeins á
Dags Retreat
12. júlí, 27. júlí, 9. águst, 24, ágúst
Frá Kl 9-20
VERÐ: 23.900kr
Einstök upplifun í grennd við höfuðborgar-svæðið. Þetta er tækifæri til að slíta sig frá hinu daglega amstri og verja tíma í friðsælu umhverfi Mosfellssveitar.
Með aðstoð:
náttúrunnar
öndunar
tónheilunar
sánu
kælingu
sundi
kakói
varðeld
samveru
ætlum við að njóta kyrrðarinnar og að leika okkur, hafa gaman að lífinu og finna meira jafnvægi og dýpri tengingu við sjálfið
Öndun & Ásetningur
Byrjum daginn á því að kynnast í stóra tjaldinu og setjum okkur ásetning fyrir daginn. Förum í létt öndunarferðalag með nærandi tónum sem losar streitu úr kerfinu og skapar innri frið & dýpri tengingu við slálfið.
Göngutúr
Eftir öndunarferðlagið munum við leggja af stað í göngu, njóta fegurðinnar og ferska loftsins sem hún hefur uppá á að bjóða. Jafnvel skellum við okkur í kalt vatn ef það kallar á okkur.
Næring & Sund
Við snæðum svo íslenska kjötsúpu áður en við förum í Lágafellslaugina í Mosfellsbæ, þar sem við erum með heimsklassa aðstöðu. Sánu, infarauða sánu, eimbað og heita potta.
Teygjur & Vefjalosun
Við snúm aftur í tjaldið og losum spennu og tregður úr vefjum áður en við förum í UmbreytAndi Öndunarferðalag.
UmbreytAndi Öndunarferðalag
Boðið er uppá hátíðlegt kakó sem mun nýtast okkur vel í djúpt og umbreytandi öndunarferðalag. Með vandaðri handleiðslu og skýrum ásetningi notum við kröftuga öndun til að komast í umbreytt ástand. Í þessu ástandi getum við haft áhrif á hegðunarmynstur okkar, skynjað undirliggjandi tilfinningar og horfst í augu við þær.
Varðeldur
Við endum daginn saman við hlýjan varðeld.
Vilt þú?
- Kúppla þig út án þess að þurfa að fara langt út fyrir borgina
- Núllstilla kerfið, næra líkama og sál
- Finna fyrir djúpslökunarástandi þar sem úrvinnsla á sér stað
- Njóta kyrrðar í náttúrunni
- Uppgötva eitthvað nýtt innra með þér
- Verja heilum degi án síma og samfélgsmiðla í eintómri kyrrð
- Eiga yndislegan dag með góðu fólki
- Styrkja ásetning og stefnu
- Öðlast verkfæri sem þú getur nýtt þér í daglega amstrinu
Hvað á að taka með?
- Fatnað samkvæmt veðri, alltaf betra að vera með meira en minna 😉
- Teppi, púða og augngrímu
- Vatnsbrúsa, bolla og nesti.
- Sundfatnað og tvö handklæði
- Bakboka
- Gönguskó og jafnvel vaðskó
- Glósubók/Dagbók
- Opið hugarfar og ásetning
Hvert mæti ég?
Við hittumst heima í Heiðabrún sem er skógi vaxið land með fagurt útsýni yfir Reykjavík til Úlfarsfells. Þar munum við
verja stórum hluta dagsins. Landið okkar liggur við Krókatjörn (lítið mál að skella sér útí ef það kallar) sem er ekki svo langt frá Hafravatni. Það er ekki nema um 15 mín keyrsla frá Reykjavík. Á google maps stendur Krókatjöm í staðinn fyrir Krókatjörn. Við skráningu verða sendar nánari upplýingar varðandi staðsetninguna!

Arnór Sveinsson er leiðbeinandi
Arnór Sveinsson heiti ég, og ég brenn fyrir því að leiða fólk í átt að sjálfsvinnu. Margir sem koma til mín eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum, og því er gott að vera með mörg tól til að bjóða upp á. Þar sem við erum öll blanda af huga, líkama og sál, þá finnst mér mikilvægt að sjálfsvinna haldi utanum alla þessa þætti. Í tímum hjá mér leiði ég fólk inn í slökunarástand með ýmsum aðferðum, en mikilvægast finnst mér að kenna fólki að nota þessar aðferðir sjálft, svo að það öðlist vald yfir eigin taugakerfi og líkama.
Viltu koma með hóp?
Ertu með vinahóp, vinnustað eða saumklúbb? Við tökum hjartnelga vel á móti öllum hópum. Sendu fyrirspurn á anda@anda.is og við finnum tíma fyrir hópinn þinn.
Slökum aðeins á
Dags Retreat
12. júlí, 27. júlí, 9. águst, 24, ágúst
Frá Kl 9-20
VERÐ: 23.900kr
Umsagnir



Ég fékk einstakt tækifæri til að taka þátt í einkatíma sem einbeitti sér að mjaðmalosun, spennulosun í hálsi, kviðnuddi og tónheilun, og þessi reynsla var hreint út sagt ótrúleg. Frá fyrsta augnabliki var nærvera Arnórs algjörlega einstök – róandi, fagmannleg og ótrúlega næm fyrir þörfum mínum. Rýmið var öruggt og traust sem gerði mér kleift að kafa djúpt inn í líkama minn og vinna úr djúpri spennu.
Æfingarnar og nuddið voru vissulega krefjandi. Þær kröfðust þess að ég sleppti takinu á vanabundinni spennu eða mótstöðu og leyfði líkamanum að taka á móti. Það var ekki alltaf auðvelt, en áhrifin sem komu í kjölfarið voru ólýsanleg. Ég fann fyrir djúpri losun í mjöðmum og kjarna, og mér leið eins og líkami minn hefði opnast og andað að sér ferskum krafti. Ég gat líka fundið hvernig kviðnuddið hafði áhrif á líffærin mín og tengdi mig enn frekar við innri starfsemi líkama míns. Þrátt fyrir að þetta væri mjög krefjandi á köflum fann ég fyrir ótrúlegum létti, mikilli tilfinningalosun og frelsi í líkamanum eftir á.
Þessi tími var sannkallað ferðalag inn á við. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif – bæði líkamlega og andlega. Takk Arnór fyrir einstaka reynslu þangað til næst!










Með því að læra nokkur einföld tól, aðferðir sem vísindi styðja við, getum við styrkt “slökunar taugina” eins og við styrkjum vöðva. Því oftar sem við styrkjum getu okkar til að fara í slökunar ástand, þeim mun auðveldara verður að leita í það oftar, ÁN ÁREYNSLU.
Það getur virst framandi að hugsa sér að það sé hægt að takast á við stress án þess að gnísta tönnum, hafa kaldar hendur, endurteknar hugsanir, meltingar vesen, lið og vöðvaverki, svefntruflanir, og listinn er endalaus. Það er algjörlega hægt að vera upptekin og slakur, virkur og stöðugur, með puttann á púlsinum og í flæði á sama tíma.

Stress er oft talað um sem rót alls ills. Það er satt á þann hátt, að ef við kunnum ekki að vinna með það, breytist það í KRÓNÍSKT stress. Það er þá sem vöðvar rýrna, húð skreppur saman eða bólgnar út, meltingin er stopp, sykurlöngun er stöðug eða matarlyst hverfur, hárið þynnist, liðir eru verkjaðir, vöðvaspenna eykst, heilaþoka eða kvíði kikkar inn, hjartsláttur er óreglulegur, hormónakerfið fer í rugl, og ég ætla að hætta hér því þetta verður bara dapurlegt.
Á HINN BÓGINN er skammtíma stress FRÁBÆRT fyrir allar frumur líkamans. Það gefur okkur orku, kraft, úthald, bætta getu til að takast á við hvað sem er, betri súrefnisupptöku, sterkari hug, og bætir líkamlega og andlega heilsu.
Því vil ég hér með vísa því á bug að við eigum bara að lifa stresslausu lífi þar sem allt er bara á léttu nótunum og allir dansa um eins og formlaus gufuský. En hver er munurinn og hvernig greini ég þar á milli? Hvernig veit ég hvenær ég er komin úr “góðu stressi” yfir í “slæmt stress”?

Það sem gerist í slökunar ástandi:
- Djúpur og nærandi svefn
- Upptaka næringarefna og góð melting
- Blóðflæði um allar frumur líkamans
- Samkennd, kærleikur, unaður og tenging
- Sköpunarkraftur og hugmyndaflug
- Spennulosun úr vöðvum og taugakerfi
- Tilfinningalosun og úrvinnsla áfalla
- Endurheimt (sérstaklega eftir veikindi)
- Hreinsun úrgangsefna úr lifur, nýrum og sogæðakerfi
- Eðlileg hormónastarfsemi
…Og svo mætti lengi telja.