Vegferð í eindurheimt
Skothelt taugakerfi · Líkami & Öndun
Vegferð í átt að sterku taugakerfi, stjórn og tengingu við líkama
Þetta er vegferð fyrir fólk sem vill ekki bara líða betur
heldur taka stjórn.
Stjórn á eigin taugakerfi.
Stjórn á eigin orku.
Stjórn á eigin viðbrögðum.
Ekki með hörku.
Ekki með pressu.
Heldur með ró, aga og markvissri uppbyggingu.
Þetta snýst ekki um að breyta lífinu -
Þetta snýst um að uppfæra kerfið sem lifir í því.
streita verður merki, ekki ógn
viðbrögð verða meðvitund
álag verður þjálfun
daglegt líf verður rými fyrir uppbyggingu
Fyrir hvern er þessi vegferð?
Fyrir fólk sem vill vaxa í eigin krafti — ekki bara jafna sig
meiri stjórn á streitu, spennu og álagi
byggja skothelt taugakerfi (stöðugleika + seiglu)
bæta athyggli, einbeitingu og orkustjórnun
vera minna í viðbragðsstöðu og meira í meðvitaðri stjórn
dýpka tengingu við líkama og öndun
ekki bara laga vandamál — heldur uppfæra kerfið
útkoman
stöðugra taugakerfi
minni grunnspennu
betri svefn
skýrari fókus og betri orkustjórnun
betri sjálfstjórn undir álagi
dýpri líkamsvitund
sterkari “grunn” — kerfi sem brotnar ekki við fyrsta álag
bætt hreyfigeta
betra flæði í bandvef og stoðkerfi
meiri tenging við líkamann
Inngangur að ferlinu
Allt byrjar á stöðumati á taugakerfi.
Eftir stöðumat:
-
færðu boð í 30 mín frítt spjall
-
við förum yfir stöðuna þína
-
kortleggjum markmið og næstu skref
-
og athugum hvort vegferðin henti þér
Engin skuldbinding — bara skýrleiki.
Fyrir hvern er þessi vegferð?
Þetta er fyrir fólk sem vill þróa sig — ekki bara jafna sig
Öndun sem styður við jafnvægi, nærveru og innri ró
Líkamsvitund (somatic nálgun) til að auka skynjun og tengingu
Styrktaræfingar sem byggja upp burð, stöðugleika og sjálfstraust í hreyfingu
Teygjur sem létta á kerfinu, mýkja líkamann og styðja við slökun
Hægari tempo og meðvitaða leiðsögn sem virðir mörk líkamans
Hagnýt verkfæri sem auðvelt er að taka með inn í daglegt líf
Fólk upplifir:
Meiri ró og jafnvægi í líkama og taugakerfi
Betri tengingu við öndun og innra ástand
Aukna líkamsvitund og skýrari mörk
Tilfinningu fyrir burði, mýkt og innri stöðugleika
Verkfæri til að styðja sig í streituvaldandi eða krefjandi aðstæðum
Dýpri skilning á því hvernig líkaminn vinnur með – ekki gegn – þér
Arnór Sveinsson
Arnór Sveinsson heiti ég, og ég brenn fyrir því að leiða fólk í átt að sjálfsvinnu. Margir sem koma til mín eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum, og því er gott að vera með mörg tól til að bjóða upp á. Þar sem við erum öll blanda af huga, líkama og sál, þá finnst mér mikilvægt að sjálfsvinna haldi utanum alla þessa þætti. Í tímum hjá mér leiði ég fólk inn í slökunarástand með ýmsum aðferðum, en mikilvægast finnst mér að kenna fólki að nota þessar aðferðir sjálft, svo að það öðlist vald yfir eigin taugakerfi og líkama.
Umsagnir
Ég fékk einstakt tækifæri til að taka þátt í einkatíma sem einbeitti sér að mjaðmalosun, spennulosun í hálsi, kviðnuddi og tónheilun, og þessi reynsla var hreint út sagt ótrúleg. Frá fyrsta augnabliki var nærvera Arnórs algjörlega einstök – róandi, fagmannleg og ótrúlega næm fyrir þörfum mínum. Rýmið var öruggt og traust sem gerði mér kleift að kafa djúpt inn í líkama minn og vinna úr djúpri spennu.
Æfingarnar og nuddið voru vissulega krefjandi. Þær kröfðust þess að ég sleppti takinu á vanabundinni spennu eða mótstöðu og leyfði líkamanum að taka á móti. Það var ekki alltaf auðvelt, en áhrifin sem komu í kjölfarið voru ólýsanleg. Ég fann fyrir djúpri losun í mjöðmum og kjarna, og mér leið eins og líkami minn hefði opnast og andað að sér ferskum krafti. Ég gat líka fundið hvernig kviðnuddið hafði áhrif á líffærin mín og tengdi mig enn frekar við innri starfsemi líkama míns. Þrátt fyrir að þetta væri mjög krefjandi á köflum fann ég fyrir ótrúlegum létti, mikilli tilfinningalosun og frelsi í líkamanum eftir á.
Þessi tími var sannkallað ferðalag inn á við. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif – bæði líkamlega og andlega. Takk Arnór fyrir einstaka reynslu þangað til næst!
Það sem gerist í slökunarástandi:
- Bætir svefngæðin
- Styrkir ónæmiskerfið
- Bætir meltingu og upptöku næringarefna
- Blóðflæði um allar frumur líkamans
- Samkennd, kærleikur, unaður og tenging
- Sköpunarkraftur og hugmyndaflug
- Spennulosun úr vöðvum og taugakerfi
- Tilfinningalosun og úrvinnsla áfalla
- Endurheimt (sérstaklega eftir veikindi)
- Hreinsun úrgangsefna úr lifur, nýrum og sogæðakerfi
- Eðlileg hormónastarfsemi, meira af gleðihormónum
…Og svo mætti lengi telja.
