ANDA BREATHWORK
1,5 klst. öndunarferðalag og tónheilun
Velkomin í rólegt og nærandi rými þar sem við stígum út úr hraðanum, sleppum tökum á spennu og leyfum líkamanum að finna aftur sinn eigin takt.
Tíminn fer fram í tjaldi í skógi, umlukinn náttúru, kyrrð og jarðtengingu. Þar skapast einstakt andrúmsloft þar sem auðveldara er að sleppa amstri dagsins og leyfa sér að vera til staðar.
Við byrjum á mjúkri og róandi öndun sem hjálpar líkamanum að lenda og taugakerfinu að stilla sig inn í öryggi. Þaðan förum við smám saman inn í dýpri og virkari öndunarvinnu þar sem þú ferð á þínum eigin hraða og velur alltaf hversu djúpt þú vilt fara.
Að lokum ljúkum við ferðalaginu með langri leiddri slökun og hljóðferðalagi sem styður líkamann í að lenda mjúklega, vinna úr upplifuninni og dvelja í djúpri ró.
Tíminn getur stutt þig í að:
• losa um uppsafnaða spennu
• róa hugann og taugakerfið
• dýpka og opna öndunina
• öðlast meiri tengingu við líkamann
• endurheimta orku og skýrleika
• komast í djúpt slökunarástand
Þú þarft enga fyrri reynslu af breathwork. Allar æfingar eru valkvæðar og þú tekur fulla þátttöku á þínum forsendum.
1,5 klukkustund
Verð 5000 kr
Takmarkaður fjöldi þátttakenda
Hvar: https://maps.app.goo.gl/CZ969j4VELmigxLK6?g_st=ic
Nánari uppl. sendar við skráningu




