Umsagnir

Birna Willard

„Áföll og slys höfðu komið mér á þann stað að líkaminn var að bregðast mér. Ég var undirlögð og buguð af bólgum, verkjum og svefnleysi. Meltingakerfið í rúst, taugakerfið í hnút, hormónakerfið í tómri vitleysu og ég löngu búin að gefast upp. Ég fór í mjaðmaskipti apríl 2024 og febrúar 2025 og við það kveiknaði í mér neisti. Ég varð að hjálpa mér út úr þessum vítahring og í því ferli benti góð vinkona mér á að fara til Arnórs og fá hann með mér í lið. Í algerri blindni, án þess að hafa hugmynd um hvað þessi töframaður gerði eiginlega fyrir fólk, sendi ég á hann SOS. Vá hvað ég var heppin! Ég fann mann sem hlustaði, hafði áhuga, kenndi mér á taugakerfið mitt, hjálpaði mér með æfingar og öndun og eftir fyrstu tímana er ég byrjuð að finna létti í öllu kerfinu mínu. Ég sef betur og lengur, líður betur og er öll einhvern veginn léttari. Takk fyrir mig og Arnór, takk fyrir þig.“

Þóra Hlín Friðriksdóttir

„Ég get ekki mælt nógu mikið með einkasession hjá Arnóri. Hann hefur sérstakan hæfileika og færni í að halda rými á meðan á djúpu heilunarferli stendur. Ásetningur, leiddar öndunaræfingar, hljóðheilun tíbetskra söngskála og vefjalosun — útkoman er algjör endurnæring sálar og líkama.“

Aðalheiður Jensen

„Ég fór í magnaðan einkatíma hjá Arnóri. Djúpar teygjur, bandvefslosun og kviðnudd ásamt öndun og tónheilun. Algjörlega magnað og ekki hægt að setja í orð hvernig mér líður eftir tímann; þú þarft bara að upplifa og leyfa honum að „work his magic“.“

Ragnar Helgi Ólafsson

„Arnór miðlar einstökum skilningi og yfirburða þekkingu sinni á samspili líkama og sálar afar skýrt, skiljanlega og — ekki síst — skemmtilega. Eftir að hafa þegið þá fræðslu hugsar maður öðruvísi um samband hugar og handar, anda og efnis. Að fylgja Arnóri í leiddum öndunaræfingum er alltaf lærdómsríkt og oftast reyndar ríflega það — næstum töfrum líkast.“

Unnur Magna

„Ég fékk einstakt tækifæri til að taka þátt í einkatíma sem einbeitti sér að mjaðmalosun, spennulosun í hálsi, kviðnuddi og tónheilun og þessi reynsla var hreint út sagt ótrúleg. Frá fyrsta augnabliki var nærvera Arnórs algjörlega einstök — róandi, fagmannleg og ótrúlega næm fyrir þörfum mínum. Rýmið var öruggt og traust sem gerði mér kleift að kafa djúpt inn í líkama minn og vinna úr djúpri spennu. Æfingarnar og nuddið voru vissulega krefjandi. Þær kröfðust þess að ég sleppti takinu á vanabundinni spennu eða mótstöðu og leyfði líkamanum að taka á móti. Það var ekki alltaf auðvelt, en áhrifin sem komu í kjölfarið voru ólýsanleg. Ég fann fyrir djúpri losun í mjöðmum og kjarna og mér leið eins og líkami minn hefði opnast og andað að sér ferskum krafti. Þrátt fyrir að þetta væri mjög krefjandi á köflum fann ég fyrir ótrúlegum létti, mikilli tilfinningalosun og frelsi í líkamanum eftir á. Þessi tími var sannkallað ferðalag inn á við. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif — bæði líkamlega og andlega.“

Arnar Gauti Sverrisson

„Hver einasta stund sem ég hef upplifað með Arnóri er tækifæri mitt til þess að færast nær sjálfum mér og uppruna mínum. Frá fyrstu tímum sem ég sótti gaf hann mér stórfengilega, einlæga nærveru og varð strax ákveðin fyrirmynd í mínu ferðalagi í leit að því að vera besta útgáfan af sjálfum mér. Ég mæli klárlega með að upplifa að minnsta kosti einu sinni að fara í nálægð við þennan kærleiksríka strák og taka einkatíma hjá honum þar sem hann leiðir þig í óskiptri athygli í gegnum öndun, yoga, hugleiðslu og tónheilun. Mitt ferðalag í auðmýkt og kærleik varð vonum framar og lífið fallegra eftir að ég fékk að njóta leiðsagnar Arnórs í lífi mínu.“

Valur Ásgeirsson

„Fór loksins í einkatíma hjá Arnóri eftir að vera búinn að vera lengi á leiðinni. Þetta var frábær upplifun. Teygjurnar og öndun með aðstoð Arnórs voru alveg magnaðar og svo alveg ótrúleg djúpslökun í kjölfarið. Með ást og hlýju.“

Petra Mazetti

„Tilfinningin í líkamanum breytist frá því að vera eins og hann sé gerður úr spítum í að vera mjúkur og lifandi. Í lok tímans ná allir vöðvar líkamans fullkominni slökun sem ég var ekki meðvituð um að væri hægt.“

Ilona Maria Luize

„I have been one of Arnór’s regular clients for at least a year and a half. His sessions cater to those seeking a deeper connection to their body and soul. Being in Arnór's presence, along with his extensive knowledge, in a private space is truly powerful and extraordinary. He teaches a lot about the connection between body and mind, and it is genuinely healing. It is impressive to see how each session is tailored to individual needs, exploring all possible paths to personal healing, making each experience unique. My personal experiences with Arnór have always been unique; he has guided me through powerful healing and has supported me throughout my pregnancies and postpartum journey. The breathing aspect of the sessions is something I highly recommend to anyone. It leads to the eternal peace that is essential in daily life and helps us remember who we truly are. I am truly grateful. Thank you!“

Helga Arnardóttir

„Ég fór í einkatíma til Arnórs þar sem við áttum gott spjall saman. Hann leiddi mig svo í gegnum öndunarferðalag og spilaði á tíbeskar söngskálar á nokkrum stöðum við líkamann. Ég naut þess að fara til hans og mér fannst tíminn hafa öflug áhrif á mig og opna mig fyrir því að hleypa tilfinningum upp á yfirborðið. Mér fannst nærvera Arnórs góð og traust og það var þægilegt að spjalla við hann og deila með honum því sem mig langaði til að vinna í. Öndunarferðalagið hafði mögnuð áhrif á mig. Ég mæli heilshugar með einkatíma hjá Arnóri.“

Melkorka Bjartmars

„Ég get ekki mælt með neinu meira en öðru af því sem Arnór kennir; allir tímar, öll námskeið, allar hugleiðslur og endurnæringarhelgar sem ég hef farið á með eða hjá honum eru alltaf umfram öllum vonum. Arnór hefur kennt mér alveg svakalega margt á stuttum tíma. Hann er virkilega fróður um hvernig líkaminn virkar og er sérstaklega góður í því að útskýra hluti þannig að allir geti tengt við og skilið það sem á sér stað í hverjum tíma. Arnór hefur í þokkabót magnaða nærveru og yndislegan styrk sem ég held að allir átti sig á eftir að hafa mætt í tíma hjá honum.“

Bjarni Sveinsson

„Ég kynntist Arnóri sumarið 2020 þegar ég fór á retreat hjá honum. Var þá á mörkum þess að vera kominn í kulnunarástand undan ofbeldissambandi við sjálfan mig. Á þessu retreati opnaðist fyrir mér nýr heimur og ég áttaði mig á því að lífið þyrfti ekki að vera svona erfitt. Ég fann innri ró og frið sem ég hafði sjaldan upplifað innan hóps; enginn að dæma þig og allir á sínum forsendum. Síðan þá hef ég markvisst unnið að því að heimfæra þessa tilfinningu inn í mitt líf. Í þessari vinnu hef ég haft Arnór með mér sem leiðbeinanda, farið á námskeið, í einkatíma og á fleiri retreat. Arnór er alveg geggjaður gaur, hlýr, hress og skemmtilegur en líka alvarlegur þegar við á. Fagmaður fram í fingurgóma.“

Fanney Einarsdóttir

„Sumarið 2019 breyttist líf mitt! Ég opnaði dyr sem hafa fyllt hjartað mitt af eintómri hamingju. Arnór var einn þeirra sem kom inn í líf mitt og hefur fært mér svo mikla visku, skilning, einlægni og vináttu. Hann er algjör galdramaður og leiðir hvern og einn tíma af svo mikilli ást, virðingu og krafti. Maður kemst á flug þar sem allt er mögulegt og leiðin er einfaldlega greið. Hann fær þig til að hugsa, endurskoða og meta allar aðstæður í öðru ljósi sem styrkir innsæið þitt á allt öðru stigi. Ég mæli eindregið með þessari einstöku sál sem ég hef fengið þau forréttindi að kynnast.“

Arnar Már Snæbjörnsson

„Ég hef farið á námskeið hjá Arnóri og í einkatíma. Mér datt ekki í hug þegar ég byrjaði hvað ég myndi læra mikið og hvað það myndi hafa mikil og jákvæð áhrif á líf mitt. Mæli 100% með Arnóri. Hver einasti andardráttur, eins og Arnór segir.“

ANDA · öndun · líkamsvitund · endurheimt

Shopping Cart