Hafðu samband

Persónuleg vegferð

Meiri ró, skýrleiki og tenging við eigin líkama

Leiðsögn og praktísk verkfæri fyrir þig sem vilt skilja eigið taugakerfi betur, losa um spennu og hafa meiri áhrif á hvernig þér líður í daglegu lífi.

Nálgun sem tekur mið af þér

Þú þarft ekki að laga allt í einu

Við vinnum saman út frá þínum þörfum og á þínum hraða. Með öndun, líkamsvinnu og markvissri leiðsögn byggjum við upp skilning og verkfæri sem nýtast þegar á reynir.

Markmiðið er að þú getir virkjað orku þegar hennar er þörf og fundið ró þegar tími er kominn til að hvílast.

Einföld leið inn

Vegferðin hefst í þremur skrefum

1. Stöðumat

Þú svarar nokkrum spurningum um stöðuna í dag, hvað þú vilt vinna með og hvert þú vilt stefna.

2. Frítt 30 mín. spjall

Við förum yfir stöðumatið, ræðum þarfir þínar og skoðum hvort persónuleg vegferð henti þér.

3. Persónuleg vegferð

Ef við ákveðum að halda áfram mótum við vegferð út frá þínum markmiðum og því sem líkaminn þarf.

Hvað getur vegferðin stutt við?

Verkfæri sem fylgja þér út í daglegt líf

  • Minni streita og uppsöfnuð spenna
  • Betri tenging við líkamann
  • Skilningur á viðbrögðum taugakerfisins
  • Meiri ró, einbeiting og jafnvægi
  • Betri svefn og endurheimt
  • Praktísk verkfæri fyrir daglegt líf

REYNSLA FÓLKS

Það sem fólk hefur sagt

„Ég sef betur og lengur, líður betur og er öll einhvern veginn léttari.“

Birna Willard

„Að fylgja Arnóri í leiddum öndunaræfingum er alltaf lærdómsríkt og oftast reyndar ríflega það – næstum töfrum líkast.“

Ragnar Helgi Ólafsson

„Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif.“

Unnur Magna

Skoða allar umsagnir

Fyrsta skrefið er einfalt

Byrjaðu á stöðumatinu

Að því loknu geturðu bókað frítt 30 mínútna spjall þar sem við skoðum næstu skref saman. Stöðumatið skuldbindur þig ekki til að hefja vegferð.

Taka stöðumat

Öndun · líkamsvinna · endurheimt

Shopping Cart