Líkamsvinna
Við vinnum með teygjur, vefjalosun og styrktaræfingar. Kviðar- og þindarlosun hjálpar til við að losa um djúpa spennu og styður við dýpri og betri öndun.
Hafðu samband
Hóptími
Líkamsvinna, öndun og djúpslökun í einum tíma — með áherslu á að byggja upp styrk, mýkt og betra samband við eigin líkama.
Styrkur og slökun
Við losum um djúpa spennu með teygjum og líkamsvinnu. Síðan virkjum við og styrkjum líkamann með einföldum æfingum sem hjálpa til við að draga úr því að spennan byggist upp aftur.
Í tímanum
Við vinnum með teygjur, vefjalosun og styrktaræfingar. Kviðar- og þindarlosun hjálpar til við að losa um djúpa spennu og styður við dýpri og betri öndun.
Við sameinum meðvitaða öndun og vöðvavirkni til að skapa dýpra öryggi og tengingu við kerfið.
Tíminn endar á viljastýrðri djúpslökun. Hér fær líkaminn rými til að komast í djúpt slökunarástand þar sem úrvinnsla og endurheimt eiga sér stað.
Fyrir hverja?
REYNSLA FÓLKS
„Ég sef betur og lengur, líður betur og er öll einhvern veginn léttari.“
Birna Willard
„Að fylgja Arnóri í leiddum öndunaræfingum er alltaf lærdómsríkt og oftast reyndar ríflega það – næstum töfrum líkast.“
Ragnar Helgi Ólafsson
„Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif.“
Unnur Magna
Næsti tími
Bókaðu næsta Body & Breathwork tíma eða hafðu samband ef þú vilt koma með eigin hóp.