Einkatímar

Andleg & Líkamleg Streitulosun

1 klst:  17.900kr
2 klst: 30.000kr

 

Einkatímar hjá mér hafa reynst vel þeim sem glíma við langvarandi streitu eða hafa hlaupið á vegg og glíma við kvíða, þunglyndi eða kulnun. Einnig sækir fólk til mín með líkamlega verki eða stoðkerfisvanda, td. Í baki, öxlum og mjöðmum, og fólk með hreyfihömlun.  Fólk með öndunarfæra vanda eins og astma eða annað getur nýtt sér tólin sem ég kenni. Þetta er líka frábær tími fyrir einstaklinga eða pör sem vilja koma og njóta, og upplifa djúpa slökun.

Hvað gerum við í einkatíma er spurning sem ég fæ oft.
Það er ekki auðvelt að setja það í eitt orð en í stuttu máli erum við að losa líkamlega og andlega streitu úr kerfinu.

Hvernig gerum við það?

  • Byrjum á stuttu spjalli og smá fræðslu um taugakerfið (fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti)
  • Förum yfir æfingar (teygjur & öndun) sem þú lærir og sinnir sem heimavinnu.
  • Vefjalosun
  • Öndunarferðalag
  • Kviðarnudd
  • Tónheilun & djúplökun þar sem líkaminn kemst í algjört úrvinnsluástand

Útkoma = Þú gengur út léttari á sál & líkama, með minni verki í líkamanum og verkfæri til þess að viðhalda þessu ástandi.

Afhverju er mikilvægt að komast í slökunarástand?

Þegar taugakerfið fær rými til þess að komast í slökunarástand fer af stað líkamlegt, huglægt & tilfinningalegt úrvinnsluástand. 

Það sem gerist í slökunarástandi:

  • Bætir svefngæðin
  • Styrkir ónæmiskerfið
  • Bætir meltingu og upptöku næringarefna 
  • Blóðflæði um allar frumur líkamans
  • Samkennd, kærleikur, unaður og tenging
  • Sköpunarkraftur og hugmyndaflug
  • Spennulosun úr vöðvum og taugakerfi
  • Tilfinningalosun og úrvinnsla áfalla
  • Endurheimt (sérstaklega eftir veikindi)
  • Hreinsun úrgangsefna úr lifur, nýrum og sogæðakerfi
  • Eðlileg hormónastarfsemi, meira af gleðihormónum

   …Og svo mætti lengi telja. 

Líkaminn er hannaður til þess að endurheimta sig!

Einkatímar eru yfirleitt tvær klukkustundir í senn, en reynslan hefur sýnt að meiri árangur næst þannig. Mesta úrvinnslan á sér stað í djúpu slökunarástandi, sem getur tekið smá stund að komast í. Til að ná langtíma árangri mæli ég yfirleitt með því að einstaklingur komi í nokkur skipti. Viðkomandi fær heimaverkefni til þess að árangur haldi markvisst áfram.

Aðrir einkatímar

 Einnig er hægt að bóka einkatíma þar sem við fókuserum á eitt viðfangsefni 
1 eða 2 klst

Öndun


Viltu bæta líkamlegt og andlegt þol? Viltu minnka bólgur og verki í líkamanum og styrkja ónæmiskerfið? Viltu öðlast meiri skilning á öndun yfir höfuð? Viltu ferðast inn í dýpsta kjarnann, losa áföll og finna svör við þínum spurningum?  Það eru ótal margar ástæður fyrir því að við ættum að stunda öndunaræfingar, því við erum alltaf andandi. Öndun er aðgengi þitt inn í taugakerfið, hvort sem þú vilt skapa meiri orku, fókus eða ró. 

Tónheilun


Einkatími í tónheilun fer þannig fram, að þú leggst á dýnu og ert umvafinn 7 Tíbeskum tónskálum ásamt gongi og öðrum hljóðfærum. Þú ert leidd/ur í gegnum ákveðna öndunaræfingu á meðan ég byrja að spila á skálarnar sem liggja í kringum þig og lagðar á líkamann. Bæði öndunin og hljóðbylgjurnar hafa róandi áhrif á taugakerfið sem losar um streitu í öllu kerfinu og gerir þér kleift að ná mjög djúpri slökun. Tónheilunin er ferðalag inná við í undirmeðvitund og tilfinningar. Ferðast tónarnir í gegnum allar frumur líkamans.

Kviðarnudd


Í nuddinu er lögð áhersla á að leggja djúpan þrýsting á ákveðin svæði í kviðarholinu til þess að örva og styrkja líffærin, svo að þau starfi betur. Mín reynsla er sú að mikið af tregðum og tilfinningalegri spennu leynist í kvið, meðal annars í
psoas vöðvanum. Ég hef séð góðan árangur hjá fólki sem kemur til mín í þetta nudd, og oft losnar um verki í líkamanum, þar sem bandvefurinn tengist þessu öllu saman. Kviðnudd er tilvalið fyrir fólk sem glímir við kvíða, streitu, meltingartruflanir, bólgur, stoðkerfisvandamál, tilfinningalega tregðu og margt fleira. Nuddið stuðlar að slökunar ástandi, losar um hnúta og spennu í bandvefnum. 

Með því að læra nokkur einföld tól, aðferðir sem vísindi styðja við, getum við styrkt “slökunar taugina” eins og við styrkjum vöðva. Því oftar sem við styrkjum getu okkar til að fara í slökunar ástand, þeim mun auðveldara verður að leita í það,
ÁN ÁREYNSLU. 

Það getur virst framandi að hugsa sér að það sé hægt að takast á við stress án þess að gnísta tönnum, hafa kaldar hendur, endurteknar hugsanir, meltingar vesen, lið og vöðvaverki, svefntruflanir, og listinn er endalaus. Það er algjörlega hægt að vera upptekin og slakur, virkur og stöðugur, með puttann á púlsinum og í flæði á sama tíma.

Umsagnir

Ég get ekki mælt nógu mikið með einkasession hjá Arnóri. Hann hefur sérstakann hæfileika og færni í að halda rými á meðan á djúpu heilunarferli stendur. Ásetningur, leiddar öndunaræfingar, hljóðheilun tíbetskra söngskála og vefjalosun og útkoman er algjör endurnæring sálar og líkama.
Þóra Hlín Friðriksdóttir
**Einkatími í mjaðmalosun, kviðnuddi og  tónheilun– ótrúleg reynsla**
 Ég fékk einstakt tækifæri til að taka þátt í einkatíma sem einbeitti sér að mjaðmalosun, spennulosun í hálsi, kviðnuddi og tónheilun, og þessi reynsla var hreint út sagt ótrúleg. Frá fyrsta augnabliki var nærvera Arnórs algjörlega einstök – róandi, fagmannleg og ótrúlega næm fyrir þörfum mínum.  Rýmið var öruggt og traust sem gerði mér kleift að kafa djúpt inn í líkama minn og vinna úr djúpri spennu.
Æfingarnar og nuddið voru vissulega krefjandi. Þær kröfðust þess að ég sleppti takinu á vanabundinni spennu eða mótstöðu og leyfði líkamanum að taka á móti. Það var ekki alltaf auðvelt, en áhrifin sem komu í kjölfarið voru ólýsanleg. Ég fann fyrir djúpri losun í mjöðmum og kjarna, og mér leið eins og líkami minn hefði opnast og andað að sér ferskum krafti. Ég gat líka fundið hvernig kviðnuddið hafði áhrif á líffærin mín og tengdi mig enn frekar við innri starfsemi líkama míns. Þrátt fyrir að þetta væri mjög krefjandi á köflum fann ég fyrir ótrúlegum létti, mikilli tilfinningalosun og frelsi í líkamanum eftir á.
Þessi tími var sannkallað ferðalag inn á við. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif – bæði líkamlega og andlega. Takk Arnór fyrir einstaka reynslu þangað til næst!
Unnur Magna
Arnór miðlar einstökum skilningi og yfirburða þekkingu sinni á samspili líkama og sálar afar skýrt, skiljanlega og (ekki síst!) skemmtilega. Eftir að hafa þegið þá fræðslu hugsar maður öðruvísi um samband hugar og handar, anda og efnis. Að fylgja Arnóri í leiddum öndunaræfingum er alltaf lærdómsríkt og oftast reyndar ríflega það – næstum töfrum líkast.
Ragnar Helgi Ólafsson
Svo að það sé sagt. Þá er hver einasta stund sem ég hef upplifað með Arnóri, tækifæri mitt til þess að færast nær sjálfum mér & uppruna mínum. Hann frá fyrstu tímum sem ég sótti gaf mér þessa stórfengilegu einglægu nærveru & breyttist strax í áhveðna fyrirmynd í mínu ferðalagi í leit að því að vera besta útgáfan af sjálfum mér. Vegna þessa hef ég sótt fjölmarga tíma hjá Arnóri & eru uppáhalds tímarnar sem hann heldur reglulega 3 klst kakó hugleiðsla & tónheilun. Ég geri plönin mín í kringum þá tíma, þar sem ég vill alls ekki missa af þeim. Einnig í amstri dagsins hentar mér að hann sé með opna tíma sem ég get hoppað á & upplifað þegar mér hentar að mæta, eins & miðvikudags hugleiðslu tímana sem er góð leið fyrir mig til að stilla mig af í miðri viku. Ég klárlega mæli með að upplifa alla vega einu sinni að fara í nálægð við þennan kærleiksríka strák & taka einkatíma hjá honum þar sem hann leiðir þig í óskiptri athygli í gegnum öndun, yoga, hugleiðslu & tónheilun. Mitt ferðalag í auðmýkt & kærleik varð vonum framar & lífið fallegra eftir að ég fékk að njóta leiðsagnar Arnórs í lífi mínu. Namaste
Arnar Gauti Sverrisson



I have been one of Arnór’s regular clients for at least a year and a half. His sessions cater to those seeking a deeper connection to their body and soul. Being in Arnór's presence, along with his extensive knowledge, in a private space is truly powerful and extraordinary. He teaches a lot about the connection between body and mind, and it is genuinely healing. It is impressive to see how each session is tailored to individual needs, exploring all possible paths to personal healing, making each experience unique. As Heraclitus once said, "You can never step into the same river twice," which perfectly illustrates how the body and mind work. My personal experiences with Arnór have always been unique; he has guided me through powerful healing and has supported me throughout my pregnancies and postpartum journey. The breathing aspect of the sessions is something I highly recommend to anyone. It leads to the eternal peace that is essential in daily life and helps us remember who we truly are. During pregnancy, this alignment and internal peace are crucial. Although it was not my first pregnancy, it has definitely been my easiest and most profound experience, for which I am incredibly grateful. The wisdom that follows these sessions is amazing—it sometimes brings feelings of sorrow as we learn to let go, happiness, and deeper pleasure in simply being alive. I am truly grateful. Thank you!
Ilona Maria Luize



Fór loksins í einkatíma hjá Arnóri eftir að vera búinn að vera lengi á leiðinni. Þetta var frábær upplifun. Teygjurnar of öndun með aðstoð Arnórs alveg magnað og svo alveg ótrúleg djúpslökun í kjölfarið. Með Ást og hlýju.
Valur Ásgeirsson


Tilfinningin í líkamanum breytist frá því að vera eins og hann sé gerður úr spítum í að vera mjúkur og lifandi. Í lok tímans ná allir vöðvar líkamann fullkominni slökun sem ég var ekki meðvituð um að væri hægt.
Petra Mazetti
Ég fór í einkatíma til Arnórs þar sem við áttum gott spjall saman, hann leiddi mig svo í gegnum öndunarferðalag og spilaði svo á tíbeskar söngskálar á nokkrum stöðum við líkamann. Ég naut þess að fara til hans og mér fannst tíminn hafa öflug áhrif á mig og opna mig fyrir því að hleypa tilfinningum upp á yfirborðið. Mér fannst nærvera Arnórs góð og traust og það var þægilegt að spjalla við hann og deila með honum því sem mig langaði til að vinna í. Öndunarferðalagið hafði mögnuð áhrif á mig og opnaði mig fyrir að finna fyrir tilfinningum mínum og víbringurinn úr söngskálunum hafði líka mikil áhrif á mig og mér fannst hann losa vel um stíflur í orkusviðinu. Ég mæli heilshugar með einkatíma hjá Arnóri.
Helga Arnardóttir


Ég get ekki mælt með neinu meira en öðru af því sem Arnór kennir, allir tímar, öll námskeið, allar hugleiðslur og endurnæringahelgar sem ég hef farið á með/hjá honum eru alltaf umfram öllum vonum. Arnór hefur kennt mér alveg svakalega margt á stuttum tíma, hann er virkilega fróður um hvernig líkaminn virkar og er sérstaklega góður í því að útskýra hluti þannig allir geta tengt við og skilið það sem á sér stað í hverjum tíma. Ég for fyrst á grunnnamskeið í yoga hjá honum og ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa byrjað hjá honum því hann passar virkilega vel uppá það að við beitum líkamanum rétt og öndum rétt sem er megin grundvöllurinn í því að komast lengra í jógastöður og tengjast sjálfum okkur betur. Arnór hefur í þokkabót magnaða nærveru og yndislegan styrk sem ég held að allir átti sig á eftir að hafa mætt í tíma hjá honum.
Melkorka Bjartmars
Ég kynntist Arnóri sumarið 2020 þegar ég fór á retreat hjá honum. Var þá á mörkum þess að vera kominn í kulnunarástand undan ofbeldissambandi við sjálfan mig. Var því mjög opinn fyrir að prufa eitthvað nýtt. Á þessu retreati opnaðist fyrir mér nýr heimur og ég áttaði mig á því að lífið þyrfti ekki að vera svona erfitt. Ég fann innri ró og frið sem ég hafði sjaldan upplifað innan hóps, enginn að dæma þig og allir á sínum forsendum þarna. Síðan þá hef ég markvisst unnið að því að ná að heimfæra þessa tilfinningu inn í mitt líf. Það er ekki alltaf auðvelt alltaf því alltaf erum við að mæta sjálfum okkur. Í þessari vinnu minni hef ég haft Arnór með mér sem leiðbeinanda, farið á námskeið ,einkatíma og fleiri retreat. Árangur hefur verið mikill en það er oft krefjandi að mæta sjálfum sér því ekkert hamlar okkur nema okkar eigið hugarfar og gjörðir a endanum. Arnór er alveg geggjaður gaur, hlýr hress og skemmtilegur en líka alvarlegur þegar við á. Gott að tala við hann til þess að létta á sér eða fá ráð,fagmaður fram í fingurgóma. Ég mæli eindregið með því að allir sem hafa hug á að auka hamingju og vellíðan að nýta sér Arnór og það sem hann hefur upp á að bjóða!
Bjarni Sveinsson


Sumarið 2019 breyttist líf mitt! Ég opnaði dyr sem hafa fyllt hjartað mitt af eintómri hamingju. Arnór var einn þeirra sem kom inn í líf mitt og hefur fært mér svo mikla visku,skilning,einlægni og vináttu.Hann er algjör galdramaður og leiðir hvern og einn tíma af svo mikilli ást, virðingu og krafti. Maður kemst á flug, þar sem allt er mögulegt og leiðin er einfaldlega greið. Hann fær þig til að hugsa, endurskoða og meta allar aðstæður í öðru ljósi sem styrkir innsæið þitt á allt öðru stigi, þinn innri fugl verður Loksins frjáls. Ég mæli eindregið með þessari einstöku sál sem ég hef fengið þau forréttindi að kynnast. Ég vona að allir taki skrefið í þetta einstaka ferðalag sem hann býður manni upp á í mörgum myndum (Whim hof öndun, buteyko öndun, haf öndun, cacao ceramonium , netnámskeiðum og einkatímum. Takk fyrir allt elsku vinur!
Fanney Einarsdóttir



Ég ef farið á námskeið hjá Arnóri og einkatíma. Mér datt ekki í hug þegar ég byrjaði hvað ég myndi læra mikið og svo hvað það myndi hafa mikil og jákvæð áhrif á líf mitt. Mæli 100% með Arnóri. Hver einasti andardráttur eins og Arnór segir.
Arnar Már Snæbjörnsson

Arnór Sveinsson

277295790_10159651470784654_2691600638526303193_n

Arnór Sveinsson heiti ég, og ég brenn fyrir því að leiða fólk í átt að sjálfsvinnu. Margir sem koma til mín eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum, og því er gott að vera með mörg tól til að bjóða upp á. Þar sem við erum öll blanda af huga, líkama og sál, þá finnst mér mikilvægt að sjálfsvinna haldi utanum alla þessa þætti. Í tímum hjá mér leiði ég fólk inn í slökunarástand með ýmsum aðferðum, en mikilvægast finnst mér að kenna fólki að nota þessar aðferðir sjálft, svo að það öðlist vald yfir eigin taugakerfi og líkama. 

Shopping Cart