Hafðu samband

Hóptími

Body & Breathwork

Líkamsvinna, öndun og djúpslökun í einum tíma — með áherslu á að byggja upp styrk, mýkt og betra samband við eigin líkama.

Styrkur og slökun

Styrkur og slökun

Við losum um djúpa spennu með teygjum og líkamsvinnu. Síðan virkjum við og styrkjum líkamann með einföldum æfingum sem hjálpa til við að draga úr því að spennan byggist upp aftur.

Í tímanum

Þrír þættir sem vinna saman

Líkamsvinna

Við vinnum með teygjur, vefjalosun og styrktaræfingar. Kviðar- og þindarlosun hjálpar til við að losa um djúpa spennu og styður við dýpri og betri öndun.

Öndun

Við sameinum meðvitaða öndun og vöðvavirkni til að skapa dýpra öryggi og tengingu við kerfið.

Djúpslökun

Tíminn endar á viljastýrðri djúpslökun. Hér fær líkaminn rými til að komast í djúpt slökunarástand þar sem úrvinnsla og endurheimt eiga sér stað.

Fyrir hverja?

Tíminn er fyrir þig ef þú vilt

  • Draga úr streitu og losa um uppsafnaða spennu.
  • Upplifa dýpri tengingu við líkamann.
  • Byggja upp stöðugleika og mýkt í líkamanum.
  • Læra hagnýt verkfæri sem þú getur nýtt í daglegu lífi.
  • Finna fyrir létti sem getur fylgt þér í marga daga eftir tímann.

REYNSLA FÓLKS

Það sem fólk hefur sagt

„Ég sef betur og lengur, líður betur og er öll einhvern veginn léttari.“

Birna Willard

„Að fylgja Arnóri í leiddum öndunaræfingum er alltaf lærdómsríkt og oftast reyndar ríflega það – næstum töfrum líkast.“

Ragnar Helgi Ólafsson

„Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif.“

Unnur Magna

Skoða allar umsagnir

Næsti tími

Komdu eins og þú ert

Bókaðu næsta Body & Breathwork tíma eða hafðu samband ef þú vilt koma með eigin hóp.

Bóka næsta tíma

Öndun · líkamsvinna · endurheimt

Shopping Cart