Breathwork & Saunagus

9.000 kr.

 

Það er komið að því! 🔥

Mig hefur lengi langað að bjóða upp á gusu og nú verður loksins af því. Ég elska saunu og er ótrúlega spenntur að sameina hana með góðu öndunarferðalgi hérna heima í skóginum.

Við byrjum á öndunarferðalagi inni í tjaldinu, umvafin náttúrunni og hráleikanum sem hún hefur upp á að bjóða. Gefum okkur smá rými til að anda, losa um og lenda í líkamanum.

Þaðan höldum við inn í heita saunagusu. Þrjár lotur af hita, ilmi og tónlist — og ein bónuslota fyrir þau sem vilja meira. Á milli getum við kælt okkur í ferska loftinu eða kalda pottinum.

Hlakka til að anda, svitna og njóta með ykkur! 🌿

Verð: 9000kr
Hvenær: 21. okt kl 18:00-20:15

Hvar: Krókatjörn

Dagsetning

21. okt, kl 18

Shopping Cart