Dagur í endurheimt

29.900 kr.

DAGUR Í ENDURHEIMT

Dagur þar sem við leggjum símann frá okkur, stígum út úr áreitinu og gefum líkamanum rými til að hægja á sér.

Dagurinn fer fram í hlýlegu og rúmgóðu tjaldi í skógi. Þar erum við umvafin trjánum, náttúrunni og kyrrðinni — fjarri hraðanum og áreitinu sem fylgir daglegu lífi. Þar skapast einstakt andrúmsloft þar sem auðveldara er að sleppa amstrinu og leyfa sér einfaldlega að vera til staðar.

Náttúran er ekki aðeins falleg umgjörð utan um daginn. Hún hjálpar okkur að hægja á, tengjast líkamanum og finna aftur jarðtengingu, ró og nærveru. Þegar við stígum út úr manngerðu umhverfi og inn í náttúruna fær taugakerfið meira svigrúm til að mýkjast og líkaminn tækifæri til að sleppa takinu.

Dagurinn inniheldur

  • Body & Breathwork
  • Náttúru, kyrrð og tíma án síma
  • Göngutúr
  • Nærandi súpu og brauð
  • Hátíðlegt kakó
  • Öndunarferðalag
  • Djúpa slökun og hljóð
  • Varðeld

Markmiðið er að skapa aðstæður þar sem líkaminn getur náð djúpri endurheimt og fundið aftur meiri ró, orku og skýrleika.

Við ljúkum deginum saman við varðeld. Þar gefum við okkur tíma til að lenda, tengjast og leyfa upplifun dagsins að setjast.

Dagurinn hentar bæði þeim sem finna fyrir álagi, spennu eða þreytu og þeim sem langar einfaldlega að stíga út úr hraðanum og verja innihaldsríkum degi í tengingu við sjálfa sig og náttúruna.

Engin fyrri reynsla af öndun eða líkamsvinnu er nauðsynleg.

16. ágúst kl. 10:00–16:00
Heiðarbrún(Krókavegur 37)
https://maps.app.goo.gl/CZ969j4VELmigxLK6?g_st=ic

Verð: 29.900 kr.
Tilboðsverð: 24.900 kr. ef bókað er fyrir 31. júlí
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Matur og allt dagskrárefni er innifalið.

Dagsetningar

16. ágúst

Shopping Cart