Slökum aðeins á
Einfalt & árangursríkt netnámskeið
Námskeiðið kemur út 7. febrúar og er það komið í forsölu á afsláttarverði.
FORSÖLU VERÐ: 11.900kr
ALMENNT VERÐ: 18.900kr
Það er orðið norm í okkar samfélagi að vera stressaður. Við þekkjum stressið svo vel að það er eins og það bráðni við okkur og verði hluti af okkur sjálfum, persónuleikanum. Það er svo margt sem við “ættum að vera að gera” alla daga, svo mikið af kvöðum, ábyrgð, og allt of margt sem átti að gerast fyrir löngu.. alla daga. To-do listinn verður alltaf lengri. Ferðalagið verður alltaf jafn langt, en við getum valið að hlaupa í gegn, labba, skokka, eða kannski bara sitt lítið af hverju. Flest okkar eru þó að hlaupa í gegnum daginn og lífið.. Eða kannski í sumum tilvikum að hlaupa frá?
Ef þú hefur á tilfinningunni að eitthvað sé ekki eins og það eigi að vera, þá ert þú á réttum stað.
Við ætlum að læra hvernig þú getur, með EINFÖLDUM aðferðum, afkastað jafn miklu eða jafnvel meiru, en lifað til fulls á sama tíma. Hljómar það ekki ágætlega?
Hvað hugsar þú um þegar þú hugsar um að slaka á?
Flest okkar halda að við séum að slaka á þegar við:
Sitjum upp í sófa að gúffa í okkur snakk
Horfum á netflix
Skrollum í símanum
Fáum okkur einn kaldan
.. en allt er þetta áframhaldandi flótti, flótti frá okkur sjálfum og lífinu.
Hvernig lítur það þá út, að vera í slökunar ástandi?
Með réttri öndun, hugarfari og líkamsbeitingu, getum við komist í slökunarástand nánast hvar og hvenær sem er.
Slökun er ekki eitthvað sem við gerum í lok dags, og höldum svo áfram í sama rússíbana daginn eftir, heldur er þetta gegnumgangandi ástand, sem við ættum að geta leitað í sem “status quo” eða hlutlaust ástand.
Stress má og á að vera hluti af hverjum degi, en það á ekki að vara lengi í senn. Það er þá sem það verður einfaldlega hættulegt heilsunni okkar.
Með því að læra nokkur einföld tól, aðferðir sem vísindi styðja við, getum við styrkt “slökunar taugina” eins og við styrkjum vöðva. Því oftar sem við styrkjum getu okkar til að fara í slökunar ástand, þeim mun auðveldara verður að leita í það oftar, ÁN ÁREYNSLU.
Það getur virst framandi að hugsa sér að það sé hægt að takast á við stress án þess að gnísta tönnum, hafa kaldar hendur, endurteknar hugsanir, meltingar vesen, lið og vöðvaverki, svefntruflanir, og listinn er endalaus. Það er algjörlega hægt að vera upptekin og slakur, virkur og stöðugur, með puttann á púlsinum og í flæði á sama tíma.
Stress er oft talað um sem rót alls ills. Það er satt á þann hátt, að ef við kunnum ekki að vinna með það, breytist það í KRÓNÍSKT stress. Það er þá sem vöðvar rýrna, húð skreppur saman eða bólgnar út, meltingin er stopp, sykurlöngun er stöðug eða matarlyst hverfur, hárið þynnist, liðir eru verkjaðir, vöðvaspenna eykst, heilaþoka eða kvíði kikkar inn, hjartsláttur er óreglulegur, hormónakerfið fer í rugl, og ég ætla að hætta hér því þetta verður bara dapurlegt.
Á HINN BÓGINN er skammtíma stress FRÁBÆRT fyrir allar frumur líkamans. Það gefur okkur orku, kraft, úthald, bætta getu til að takast á við hvað sem er, betri súrefnisupptöku, sterkari hug, og bætir líkamlega og andlega heilsu.
Því vil ég hér með vísa því á bug að við eigum bara að lifa stresslausu lífi þar sem allt er bara á léttu nótunum og allir dansa um eins og formlaus gufuský. En hver er munurinn og hvernig greini ég þar á milli? Hvernig veit ég hvenær ég er komin úr “góðu stressi” yfir í “slæmt stress”?
Þetta er það sem þú munt læra á þessu netnámskeiði. Ég hef sett saman einfalt, hnitmiðað og sjálfstýrt netnámskeið sem þú tekur þegar þér hentar.
Þetta námskeið er fyrir þig ef þú vilt:
- Verða sterkari einstaklingur sem getur höndlað lífið
- Bæta getu til að skrúfa þig niður í slökunar ástand
- Finna fyrir djúpslökunarástandi þar sem mikil úrvinnsla getur átt sér stað
- Læra öndunaræfingar sem skapa seiglu og bæta úthald
- Fara í gegnum daginn án þess að vera algjörlega tómur í lok dags
- Öðlast lykla sem koma þér lengra með því að hægja á
Það sem gerist í slökunar ástandi:
- Djúpur og nærandi svefn
- Upptaka næringarefna og góð melting
- Blóðflæði um allar frumur líkamans
- Samkennd, kærleikur, unaður og tenging
- Sköpunarkraftur og hugmyndaflug
- Spennulosun úr vöðvum og taugakerfi
- Tilfinningalosun og úrvinnsla áfalla
- Endurheimt (sérstaklega eftir veikindi)
- Hreinsun úrgangsefna úr lifur, nýrum og sogæðakerfi
- Eðlileg hormónastarfsemi
…Og svo mætti lengi telja.
Líkaminn er einfaldlega hannaður þannig, að þegar við erum lengi í stressi kveikir hann á stillingu sem mætti kalla “lifa af stillingin”, og þá er allri starfsemi, sem snýst ekki um að lifa af, ýtt til hliðar. Ef þetta varir lengi erum við vægast sagt ekki í góðum málum.
Það sem þú munt fá úr þessu námskeiði er:
Öndunaraðferðir
Með mismunandi öndunaraðferðum getur þú öðlast meira vald yfir eigin taugakerfi.
Leiddar djúpslökunar æfingar
Í djúpslökun fær líkaminn tækifæri til að endurheimta heilsuna og komast í úrvinnsluástand.
Tónaferðalög með tónskálum og öðrum hljóðfærum
Með notkun tóna sem gefa frá sér djúpar hljóðbylgjur höfum við árif á undirmeðvitundina.
Praktískur fróðleikur og taugakerfið og hvernig þú getur stýrt því
Hnitmiðuð og nytsamleg vitneskja byggð á vísindum.
Líkamlegar æfingar sem eru hannaðar til að skapa slökun
Með því að teygja og styrkja ákveðna líkamshluta getum við haft áhrif á taugakerfið.
Aðstoð við að kortleggja þitt eigið taugakerfi
Við notumst meðal annars við Poly-vagal theory sem gefur okkur skýra mynd af því hvernig taugakerfið virkar.
Arnór Sveinsson er leiðbeinandi
Arnór Sveinsson heiti ég, og ég brenn fyrir því að leiða fólk í átt að sjálfsvinnu. Margir sem koma til mín eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum, og því er gott að vera með mörg tól til að bjóða upp á. Þar sem við erum öll blanda af huga, líkama og sál, þá finnst mér mikilvægt að sjálfsvinna haldi utanum alla þessa þætti. Í tímum hjá mér leiði ég fólk inn í slökunarástand með ýmsum aðferðum, en mikilvægast finnst mér að kenna fólki að nota þessar aðferðir sjálft, svo að það öðlist vald yfir eigin taugakerfi og líkama.
Slökum aðeins á
Ef þú ert ennþá ekki viss um að þetta sé rétt fyrir þig, þá er auðvitað velkomið að hafa beint samband við mig í gegnum anda@anda.is, eða kíkt í opinn tíma/einkatíma og séð hvað þér finnst.
FORSÖLU VERÐ: 11.900
ALMENNT VERÐ: 18.900
Umsagnir
Mæli eindregið með “Innileg öndun Netnámskeiði” hjá Arnóri. Námskeiðið er vel sett upp og frábært að geta mætt í tíma þegar manni hentar heima hjá sér. Arnóri tekst að miðla þekkingu sinni mjög vel í gegnum netið og eru öll video mjög skýr og hver tími með skýran tilgang. Að mínu mati “passlega” mikið af nýjum þáttum teknir fyrir í hverjum tíma þannig að maður nær að æfa sig að koma inn nýjum ásetningi og finna hvað hentar fyrir mann sjálfan á milli tíma. Ég er ótrúlega ánægð að finna hvað regulegar önduræfingar eru að skila mér meiri ró, vellíðan og slökun.
Ég get ekki mælt með neinu meira en öðru af því sem Arnór kennir, allir tímar, öll námskeið, allar hugleiðslur og endurnæringahelgar sem ég hef farið á með/hjá honum eru alltaf umfram öllum vonum. Arnór hefur kennt mér alveg svakalega margt á stuttum tíma, hann er virkilega fróður um hvernig líkaminn virkar og er sérstaklega góður í því að útskýra hluti þannig allir geta tengt við og skilið það sem á sér stað í hverjum tíma. Ég for fyrst á grunnnamskeið í yoga hjá honum og ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa byrjað hjá honum því hann passar virkilega vel uppá það að við beitum líkamanum rétt og öndum rétt sem er megin grundvöllurinn í því að komast lengra í jógastöður og tengjast sjálfum okkur betur. Arnór hefur í þokkabót magnaða nærveru og yndislegan styrk sem ég held að allir átti sig á eftir að hafa mætt í tíma hjá honum.