Body & Breathwork

8.900 kr.

 

Þú BODY & BREATHWORK
2,5 klst. djúp núllstilling fyrir líkama og taugakerfi

Lengri tími þar sem við gefum okkur gott rými til að vinna með líkamann, öndunina og taugakerfið.

Við byrjum á líkamsvinnu, mjúkri hreyfingu og spennulosun til að losa um uppsafnaða spennu og opna líkamann. Þaðan förum við yfir í dýpri öndunarvinnu og ljúkum með langri slökun og hljóðferðalagi.

Við vinnum með líkamsvirka öndun þar sem við tengjum saman öndun, líkamsvitund og markvissa virkni í líkamanum. Þannig getum við opnað öndunina, losað um spennu og skapað dýpri tengingu við líkamann.

Í tímanum vinnum við meðal annars með:

• líkamsvinnu og hreyfingu
• teygjur og spennulosun
• kvið, þind og mjaðmasvæði
• Virk öndun
• djúpa slökun
• hljóð og endurheimt

Markmiðið er að þú gangir út úr tímanum með:

• léttari líkama
• opnari og frjálsari öndun
• minni spennu í kerfinu
• meiri ró og skýrleika
• tilfinningu fyrir djúpri núllstillingu

Þetta er ekki bara slökun í augnablikinu. Við erum að þjálfa líkamann í að sleppa takinu, finna aftur jafnvægi og byggja upp meiri getu til að takast á við lífið eins og það er.

Þú þarft enga fyrri reynslu og tekur þátt á þínum hraða. Öndunin og æfingarnar eru alltaf aðlagaðar að hverjum og einum.

Tíminn fer fram í rólegu og persónulegu umhverfi í tjaldinu í skóginum í Mosfellsbæ.

2,5 klukkustundir
Verð: 8.900 kr.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Sendu mér skilaboð eða skráðu þig til að tryggja þér pláss.

 

Einnig hægt að millifæra:
Reikningsnúmer: 0515-26-005577, kennitala: 650314-1070

Dagsetning

5.ágúst, miðvikudagur kl18, 19. ágúst, miðvikudagur kl18, 30. ágúst, sunnudagur kl kl17

Shopping Cart