Líkami & Öndun
Einkatímar / vegferðir
Skothelt taugakerfi · Líkami & Öndun
Vegferð í átt að sterku taugakerfi, stjórn og tengingu við líkama
Arnór Sveinsson er leiðbeinandi
Arnór Sveinsson heiti ég, og ég brenn fyrir því að leiða fólk í átt að sjálfsvinnu sem er rótuð í vísindum, virkni og innsæi. Margir sem koma til mín eru að stíga sín fyrstu skref í þessum málum, og því er gott að vera með mörg tól til að bjóða upp á. Þar sem við erum öll blanda af huga, líkama og sál, þá finnst mér mikilvægt að vinnan sem ég býð upp á haldi utanum alla þessa þætti. Í tímum hjá mér leiði ég fólk inn í mismunandi taugakerfis ástand eftir þörfum hvers og eins, með ýmsum aðferðum svo sem teyjum sem vinna beint á taugakerfið, hnitmiðaða öndunartækni, vefjalosun og verkjalosun, en mikilvægast finnst mér að kenna fólki að nota þessar aðferðir sjálft, svo að það öðlist vald yfir eigin taugakerfi og líkama.
Þessi vegferð er hönnuð sem ferli þar sem við byggjum upp:
sterkt taugakerfi
seiglu og úthald
getu til að losa streitu daglega
stjórn á eigin líkama og líðan
djúpa líkamsvitund
góða orkustjórnun
innri stöðugleika
Þetta er vinna fyrir fólk sem vill ekki bara líða betur — heldur virka betur.
Tímarnir fara fram í notalegu rými í skógi í gennd við Reykjavíkþar sem umhverfið sjálft styður við ró, fókus og endurheimt.

Fyrir hvern er þessi vegferð?
Þetta er bæði fyrir fólk undir álagi og fyrir fólk sem er framsækið og metnaðarfullt.
Fyrir einstaklinga sem:
- Hafa mikinn drifkraft en vantar getu til að viðhaalda honum
- Leita að raunhæfum verkfærum sem nýtast í daglegu lífi
- vilja vera minna í viðbragðsstöðu og meira í meðvitaðri stjórn
- Vilja ná langt án þess að það bitni á taugakerfinu
- Hafa verið undir álagi lengi og þurfa aðstoð við að skapa viðgerðar ástand í líkamanum
- vilja vera í uppbyggingu, (líkamlega og andlega) ekki bara viðhaldi
- vilja hámarka eigin getu, ekki bara draga úr einkennum
Inngangur að ferlinu
Allt ferlið byrjar á stöðumati á taugakerfi.
Eftir stöðumat:
- færðu boð í 30 mínútna samtal á zoom
- við förum yfir stöðuna
- kortleggjum þarfir
- skoðum hvort vegferðin henti þér
Eftir einkatíma upplifa margir:
Meiri ró og jafnvægi í líkama og taugakerfi
Betri tengingu við öndun og innra ástand
Aukna líkamsvitund og skýrari mörk
Tilfinningu fyrir burði, mýkt og innri stöðugleika
Að þau hafi verkfæri til að styðja sig í streituvaldandi eða krefjandi aðstæðum
Dýpri skilning á því hvernig líkaminn vinnur með – ekki gegn – þér
Ertu ekki viss hvort að þetta sé fyrir þig?
Taktu stöðumat hér (tekur 5 mín), ég mun svo heyra í þér og við sjáum hvað hentar þér.
Umsagnir
Ég fékk einstakt tækifæri til að taka þátt í einkatíma sem einbeitti sér að mjaðmalosun, spennulosun í hálsi, kviðnuddi og tónheilun, og þessi reynsla var hreint út sagt ótrúleg. Frá fyrsta augnabliki var nærvera Arnórs algjörlega einstök – róandi, fagmannleg og ótrúlega næm fyrir þörfum mínum. Rýmið var öruggt og traust sem gerði mér kleift að kafa djúpt inn í líkama minn og vinna úr djúpri spennu.
Æfingarnar og nuddið voru vissulega krefjandi. Þær kröfðust þess að ég sleppti takinu á vanabundinni spennu eða mótstöðu og leyfði líkamanum að taka á móti. Það var ekki alltaf auðvelt, en áhrifin sem komu í kjölfarið voru ólýsanleg. Ég fann fyrir djúpri losun í mjöðmum og kjarna, og mér leið eins og líkami minn hefði opnast og andað að sér ferskum krafti. Ég gat líka fundið hvernig kviðnuddið hafði áhrif á líffærin mín og tengdi mig enn frekar við innri starfsemi líkama míns. Þrátt fyrir að þetta væri mjög krefjandi á köflum fann ég fyrir ótrúlegum létti, mikilli tilfinningalosun og frelsi í líkamanum eftir á.
Þessi tími var sannkallað ferðalag inn á við. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir alla sem vilja losa um djúpa spennu, efla tengingu við líkama sinn og upplifa umbreytandi áhrif – bæði líkamlega og andlega. Takk Arnór fyrir einstaka reynslu þangað til næst!
